Hoppa yfir valmynd
29. mars 2017 Utanríkisráðuneytið

Norðurslóðir ekki lengur á hjara veraldar

Hlýtt á ávarp Guðlaugs Þórs - mynd

Áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðum og aukin alþjóðleg athygli á málefnum svæðisins voru meginefni ræðu sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hélt á ráðstefnu um samvinnu á norðurslóðum sem nú stendur yfir í Arkhangelsk í Rússlandi. Í ávarpi sínu sagði Guðlaugur Þór norðurslóðamál forgangsmál í utanríkisstefnunni, enda vörðuðu þau margvíslega hagsmuni eru lytu að umhverfi, efnahagsmálum og nýtingu auðlinda, varnar- og öryggismálum og innviðauppbyggingu. Minnti ráðherra einnig á mikilvægi málefna hafsins og Norðurskautsráðið sem leiðandi vettvang um málefni norðurslóða, en Ísland tekur við formennsku í ráðinu árið 2019.

Guðlaugur Þór og Børge Brende

„Það sem gerist á norðurslóðum hefur áhrif langt út fyrir svæðið og á sama hátt hefur þróun fjarri norðurslóðum mikil áhrif á málefni svæðisins. Norðurslóðir eru því nátengdar öðrum svæðum og við erum þar háð víðtækri samvinnu hvað sem líður ágreiningsmálum annars staðar. Norðurslóðir eru ekki lengur á hjara veraldar, heldur gegna lykilhlutverki í framtíð okkar allra,“ segir Guðlaugur Þór.

Utanríkisráðherra átti einnig fund með norska starfsbróður sínum, Børge Brende, þar sem samvinna ríkjanna var rædd, meðal annars innan EFTA og í tengslum við útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Þá ræddu ráðherrarnir samstarf á norðurslóðum og innan Eystrasaltsráðsins, sem og í öryggis- og varnarmálum, ekki síst á Norður-Atlantshafi. „Við ræddum einnig nýliðna Noregsheimsókn forseta Íslands og náin tengsl þessara vinaþjóða á flestum sviðum mannlífsins," segir Guðlaugur Þór.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd
 Heimsmarkmið SÞ: 13 Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum