Hoppa yfir valmynd
24. maí 2017 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið júlí - desember 2017

15. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2017.

Eitt tilboð barst um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 1.650 stk., á meðalverðinu 115 kr./stk.  Hæsta boð var 135 kr./stk. en lægsta boð var 95 kr./stk. Tilboði var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 1.650 stk. á meðalverðinu 115 kr./stk.

Eitt tilboð barst um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 2.160 stk., á meðalverðinu 117 kr./stk.  Hæsta boð var 135 kr./stk. en lægsta boð var 95 kr./stk. Tilboði var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 2.160 stk. á meðalverðinu 117 kr./stk.

Eitt tilboð barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 6.500 stk., á meðalverðinu 8 kr./stk.  Hæsta boð var 13 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 6.500 stk. á meðalverðinu 8 kr./stk.

Tvær umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 105.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 118.750 stk. Úthlutað var án útboðs.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og  nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

 

Blómstrandi pottaplöntur júlí – desember 2017

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.650

Húsasmiðjan Blómaval ehf

 

Aðrar pottaplöntur júlí- desember 2017

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

2.160

Húsasmiðjan Blómaval ehf

 

Tryggðablóm júlí - desember 2017

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

6.500

Samasem ehf

 

(Annars)  afskorin blóm júlí – desember 2017

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

45.000

Grænn markaður ehf

60.000

Samasem ehf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum