Hoppa yfir valmynd
26. maí 2017 Forsætisráðuneytið

Framlag Íslands mikils metið

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, fundaði í dag með Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í tengslum við fund leiðtoga bandalagsins sem fram fór í Brussel.

Á fundinum var rætt um þróun öryggismála, aukinn varnarviðbúnað og framlög til öryggis- og varnarmála.
Forsætisráðherra gerði grein fyrir stefnumótun stjórnvalda í öryggis- og varnarmálum, stofnun þjóðaröryggisráðs og aukna þátttöku Íslands í störfum Atlantshafsbandalagsins. Farið var yfir þróun öryggismála á Norður-Atlantshafi og mikilvægi varnarinnviða á Íslandi í því samhengi. Ráðherra tók einnig upp mikilvægi þess að halda áfram að fylgja eftir jafnréttissjónarmiðum í starfi og aðgerðum bandalagsins.
,,Það kom fram í máli framkvæmdastjórans að framlög Íslands og þátttaka í gegnum tíðina er mikils metin. Hann lagði áherslu á mikilvægi forystu Íslands í jafnréttismálum innan bandalagsins. Við höfum verið að skerpa á stefnumótun og framkvæmd þjóðaröryggismála samhliða því að auka þátttöku í starfi bandalagsins á borgaralegum forsendum.” segir Bjarni.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum