Hoppa yfir valmynd
29. maí 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samkomulag um efni tvísköttunarsamnings milli Íslands og Japans

Gengið var frá samkomulagi um efni tvísköttunarsamnings milli Íslands og Japans á fundi í
Tókyó dagana 17. - 19. maí sl.

Í samningsdrögunum er að finna ákvæði sem ætlað er að varpa ljósi á skattlagningu beggja ríkja og hvernig eigi að hindra alþjóðlega tvísköttun og koma í veg fyrir skattsvik og skattaundanskot. Þá er þess vænst að samningurinn stuðli að frekari gagnkvæmum fjárfestingum og efnahagslegum samskiptum milli ríkjanna.

Undirritun samningsins mun fara fram þegar gengið hefur verið frá lokatexta hans og
nauðsynlegar ráðstafanir hafa verið gerðar af hálfu ríkisstjórna í hvoru ríki fyrir sig. Að því
frágengnu mun samningurinn taka gildi að loknu fullgildingarferli samkvæmt lögum ríkjanna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum