Hoppa yfir valmynd
2. júní 2017 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Nýræktarstyrkir Miðstöðvar íslenskra bókmennta afhentir

Úthlutun Nýræktarstyrkja 2017 - mynd

Nýræktarstyrki 2017 hljóta Fríða Ísberg og Pedro Gunnlaugur Garcia. Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra afhenti styrkina við athöfn í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambandsins,

Í frétt frá Miðstöð íslenskra bókmennta segir: "Fimmtudaginn 1. júní, veitti Miðstöð íslenskra bókmennta tveimur nýjum höfundum Nýræktarstyrki til útgáfu á verkum þeirra, en hvor styrkur nemur 400.000 kr. Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra afhenti styrkina við athöfn í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambandsins og óskaði við það tækifæri nýjum höfundum alls góðs í ritstörfunum. Þetta er í tíunda skipti sem Nýræktarstyrkjum er úthlutað, en alls hafa hátt í fimmtíu höfundar hlotið þessa viðurkenningu frá upphafi.

Nýræktarstyrkir eru sérstakir styrkir til útgáfu á fyrstu skáldverkum höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum og til að hvetja þá til frekari dáða á þeirri braut. Átt er við skáldverk í víðri merkingu; sögur, ljóð, leikrit, eða eitthvað allt annað. Meðal höfunda sem hlotið hafa Nýræktarstyrki á liðnum árum eru Arngunnur Árnadóttir, Bergur Ebbi Benediktsson, Bryndís Björgvinsdóttir, Dagur Hjartarson, Halldór Armand Ásgeirsson, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, Sigurlín Bjarney Gísladóttir og Sverrir Norland. 

Í ár bárust 57 umsóknir um Nýræktarstyrki og er það metumsóknarfjöldi á þeim tíu árum sem styrkirnir hafa verið veittir. Verkin sem sótt var um fyrir eru af ýmsum toga s.s. skáldsögur, leikrit, ljóð, barna- og ungmennabækur, smásögur og glæpasögur og eru höfundar á öllum aldri. Eins og fyrr segir hlutu styrkina í ár skáldsaga og ljóðasafn. Að vali styrkhafa standa bókmenntaráðgjafar Miðstöðvar íslenskra bókmennta, sem í ár eru Helga Ferdinandsdóttir og Magnús Guðmundsson.

Nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta 2017 hljóta eftirtalin verk og höfundar:

Slitförin

Safn ljóða

Fríða Ísberg (f. 1992) stundar meistaranám í ritlist, hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands og hefur verið virk í upplestra- og ljóðakvöldum. Slitförin er sextíu ljóða skáldverk, unnið sem 30 eininga meistaraverkefni í ritlist við Háskóla Íslands, undir leiðsögn Sigurðar Pálssonar. 

Umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið:

"Slitförin er safn ljóða sem fjalla á ágengan hátt um togstreituna við að brjótast undan áhrifavöldum bernskunnar og finna leiðina að eigin sjálfi. Leiðarstef verksins er sársaukinn sem sprettur úr nístandi sorg milli barns og foreldris. Ljóðin taka pláss, sýna afstöðu og grípa lesendur föstum tökum.“

Ráðstefna talandi dýra

Skáldsaga

Pedro Gunnlaugur Garcia (f. 1983) er portúgalsk-íslenskur með BA í félagsfræði og MA í hagnýtri menningarmiðlun. Pedro Gunnlaugur hefur unnið að skáldsögunni Ráðstefna talandi dýra í eitt og hálft ár samhliða starfi stuðningsfulltrúa í Háaleitisskóla.

Umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið:

"Skáldsagan Ráðstefna talandi dýra er ekkert venjulegt byrjendaverk heldur viðamikil og þroskuð skáldsaga sem fléttar saman ólíka menningarheima á tvennum tímum, líf fólks, drauma og örlög. Frjótt ímyndunarafl í sterklega byggðri frásögn, á lifandi og skemmtilega stílaðri íslensku, mynda einstaka heild í heillandi skáldsögu.""

Sjá nánar á vef Miðstöðvar íslenskra bókmennta.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum