Hoppa yfir valmynd
7. júní 2017 Innviðaráðuneytið

Tóku þátt í ráðstefnu International Transport Forum

Sigurbergur Björnsson tók þátt í fundinum í Leipzig. - mynd
Fulltrúar Íslands tóku þátt í árlegum alþjóðlegum fundi samgönguráðherra í Leipzig í Þýskalandi á dögunum undir merkjum International Transport Forum, samtaka 57 ríkja um samgöngumál og flutninga. Sigurbergur Björnsson, skrifstofustjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, tók þátt í fundinum fyrir hönd ráðherra og flutti kveðju hans. Einnig sat Hreinn Haraldsson vegamálastjóri fundinn. 

Ráðherrar aðildarríkjanna samþykktu yfirlýsingu þar sem fram kemur að stjórnarhættir samgöngumála eigi að ná til og fást við þau metnaðarfullu markmið sem sett eru í Parísaryfirlýsingu ríkja Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var í fyrra. Til að ná þeim markmiðum verði að breyta samgöngukerfum og samgöngutækni og auka verði samvinnu yfirvalda samgöngumála og fyrirtækja sem starfa að samgöngum meðal annars í því skyni að deila upplýsingum og gögnum er varða samgöngur og flutninga. Ná þarf fram meira samráði er varðar samgöngur í þéttbýli meðal annars þegar kemur að skipulagsmálum.

Í yfirlýsingu ráðherranna er fjallað um mikilvægi samgangna fyrir flutninga á alþjóðavísu, nauðsyn alþjóðlegra reglna og samvinnu ríkja við stefnumótun í samgöngum. Uppbygging samgönguinnviða skuli vera framsækin og leysa samgönguþarfir morgundagsins. Lýst er því sjónarmiði að haga verði regluverki þannig að það sé sveigjanlegt og vinni með nýsköpun. Þá er lögð áhersla á að samgönguupplýsingar frá opinberum aðilum og fyrirtækjum séu aðgengilegar og nýtanlegar til áætlunargerðar og stjórnunar á samgöngum. Loks er í yfirlýsingunni fjallað um aðgengi allra þjóðfélagshópa að samgöngum ekki síst að teknu tilliti til breytinga í aldurssamsetningu og lífsstíls almennings. 

Í ávarpi á ráðstefnunni greindi Sigurbergur Björnsson frá þeirri miklu aukningu sem orðið hefði í komu ferðamanna til Íslands, hvernig aukningin reyndi mjög á vegakerfið og að brýnt væri að efla slysavarnir. Einnig sagði hann að eftir nokkurra ára niðurskurð væri aukin fjárfesting á sviði samgöngumannvirkja í sjónmáli og unnið væri að athugun á mögulegri samvinnu ríkis og einkageirans við fjármögnun umfangsmikilla samgöngumannvirkja.

Þá sagði hann frá samstarfi 6 ráðuneyta um aðgerðaáætlun til að draga úr áhrifum gróðurhúsalofts í á hinum ýmsu sviðum sem væri í anda yfirlýsingar ráðstefnu ITF og sagði að Ísland styddi heilshugar ráðherrayfirlýsinguna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum