Hoppa yfir valmynd
20. júní 2017 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á EFTA tollkvóta 2017-2018

Fimmtudaginn 15. júní 2017 rann út umsóknarfrestur um EFTA tollkvótum á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss, vegna innflutnings á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx og ostum 0406.xxxx fyrir tímabilið 1. júlí 2017 – 30. júní 2018.

Ein umsókn barst um innflutning á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx, samtals 5.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsókn náði ekki því magni sem í boði var eða 10.000 kg.

Tvær umsóknir bárust um innflutning ostum, úr vörulið 0406.xxxx, samtals 15.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir voru jafnar því magni sem í boði var eða 15.000 kg.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli umsókna:

Nautakjöt fyrir tímabilið júlí 2017 – júní 2018

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

5.000

Ekran ehf.


Ostur fyrir tímabilið júlí 2017 – júní 2018

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

7.000

Ekran ehf.

8.000

Mjólkursamsalan hf.


Reykjavík, 19. júní 2017

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum