Hoppa yfir valmynd
10. júlí 2017 Matvælaráðuneytið

Fundir nefndar um byggðakvóta kynntir á landsbyggðinni

Nefnd um endurskoðun byggðakvótakerfisins hefur skilað tillögum sínum til ráðherra og mun kynna þær á samráðsfundum víða um land í þessari og næstu viku.

Fundadagskráin er þessi:

  • Félagsheimilinu á Raufarhöfn, fimmtudaginn 6. júlí kl. 12-14.
  • Félagsheimilinu á Hvammstanga föstudaginn 7. júlí kl. 14-16.
  • Félagsheimilinu á Þingeyri mánudaginn 10. júlí kl. 12-14.
  • Hótelinu á Breiðdalsvík þriðjudaginn 11. júlí kl. 10-12.
  • Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu í Reykjavík 12. júlí kl. 14-16.

Tillögurnar verða birtar opinberlega í næstu viku en hægt verður að senda starfshópnum athugasemdir fram í lok júlí. Síðan fer málið í vinnslu í ráðuneytinu og fer að sjálfsögðu í hefðbundið umsagnarferli ef frumvarp kemur fram í þinginu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum