Hoppa yfir valmynd
31. júlí 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra heimsótti World Scout Moot í dag

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra heimsótti World Scout Moot í dag, skoðaði sig um og spjallaði við þátttakendur.

Það er til fyrirmyndar að sjá ungt fólk frá ólíkum heimshlutum og allskonar menningu að vinna saman, leysa verkefni, kynnast hvert öðru og njóta lífsins og skátaandans” sagði Óttarr í heimsókn sinni.

Óttarr átti einnig fund með þeim Mörtu Magnúsdóttur skátahöfðingja, Hrönn Pétursdóttur mótsstjóra World Scout Moot og fleira forystufólki skátahreyfingarinnar. Á fundinum fékk ráðherra upplýsingar um gang mála á skátamótinu og þær áskoranir sem mætt hafa þátttakendum og stjórnendum. Umfang mótsins er mikið og viðfangsefnin mörg enda er þessi viðburður af svipaðri stærðargráðu og Vetrarólympíuleikar eins og Hrönn Pétursdóttir mótsstjóri benti á.

Það er magnað að fá að upplifa stemmninguna og samheldnina á þessu alþjóðlega skátamóti. Skátastarf er mikilvægt fyrir ungt fólk en það er ekki bara ekki leið fyrir ungt fólk að vaxa úr grasi og standa á eigin fótum heldur mikilvægt lýðheilsu- og lýðræðismál”.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum