Hoppa yfir valmynd
2. ágúst 2017 Forsætisráðuneytið

Rætt um Brexit og fiskveiðistjórnunarkerfið á Íslandi

Forsætisráðherra Íslands og ráðherra umhverfis-, matvælaframleiðslu- og byggðamála í Bretlandi. - mynd

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra fundaði í gær 1. ágúst, með Michael Gove ráðherra umhverfis,- matvælaframleiðslu- og byggðamála í Bretlandi en sjávarútvegsmál heyra undir ráðuneyti hans. Á fundinum ræddu þeir um góð samskipti landanna og lögðu áherslu á að nýta tækifærin til að styrkja þau enn frekar. Þá ræddu ráðherrarnir úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu (Brexit) og sjávarútvegsmál en að sögn Goves er megintilgangur heimsóknarinnar að kynna sér íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið og starfsemi á sviði sjávarútvegs.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum