Hoppa yfir valmynd
11. ágúst 2017 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Umsækjendur um stöður skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla og rektors Menntaskólans í Reykjavík

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla rann út þriðjudaginn 8. ágúst sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust umsóknir frá fjórum umsækjendum um stöðuna, tveimur konum og tveimur körlum. Umsækjendur eru:

Hulda Birna Baldursdóttir markaðsstjóri,
Kristján Bjarni Halldórsson áfangastjóri,
Ólafur Haukur Johnson framhaldsskólakennari og
Sigurbjörg Jóhannesdóttir framhaldsskólakennari.

Umsóknarfrestur um stöðu rektors Menntaskólans í Reykjavík rann út þriðjudaginn 8. ágúst sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust umsóknir frá níu umsækjendum um stöðuna, fjórum konum og fimm körlum. Umsækjendur eru:

Birgir Urbancic Ásgeirsson framhaldsskólakennari,
Björn Gunnlaugsson framhaldsskólakennari,
Elísabet Siemsen framhaldsskólakennari,
Kolbrún Elfa Sigurðardóttir framhaldsskólakennari,
Kristján Bjarni Halldórsson áfangastjóri,
Margrét  Jónsdóttir Njarðvík framhaldsskólakennari,
Ólafur Haukur Johnson framhaldsskólakennari,
Sigurbjörg Jóhannesdóttir framhaldsskólakennari og
Sigurjón Benediktsson tannlæknir.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðurnar frá og með 1. október nk. 
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum