Hoppa yfir valmynd
20. september 2017

Hjúkrunarfræðingar/ljósmæður - Landspítali, starfsnám til sérfræðiviðurkenningar - Reykjavík - 201709/1498

 

Launað starfsnám til sérfræðiviðurkenningar í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði
 
Landspítali auglýsir eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum í launað starfsnám til sérfræðiviðurkenningar. 

Tilgangur starfsnámsins er að efla sérfræði- og fagþekkingu hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra. Markmið starfsnámsins er að efla og bæta við klíníska færni og þekkingu á viðkomandi sérsviði, að einstaklingar fái þjálfun í fræðilegum vinnubrögðum, auki rannsóknareynslu og þjálfi ýmiskonar hlutverk sérfræðings á viðkomandi sérsviði. 
Starfsnámið er einstaklingsmiðað og stendur yfir í 9-24 mánuði. Starfsnámið hefst á tímabilinu 1. nóvember 2017 - 1. febrúar 2018.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Helsta verkefni hjúkrunarfræðings/ ljósmóður í starfsnámi er að afla þekkingar og reynslu í hlutverki sérfræðings á sínu sviði
» Hlutfall vinnuframlags í starfsnámi tekur mið af lengd námsins

Hæfnikröfur
» Meistarapróf sem uppfyllir skilyrði reglugerða um hjúkrunarfræðinga nr. 512/2013 með síðari breytingum og/eða um ljósmæður nr. 1089/2012. Báðar viðkomandi reglugerðir fjalla um menntun, réttindi og skyldur viðkomandi stétta til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi
» Áhugi og metnaður til sérfræðiviðurkenningar á tilteknu sviði hjúkrunar- eða ljósmóðurfræði
» Íslenskt hjúkrunar-/ ljósmóðurleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir "laus störf". Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef umsækjandi er ekki þegar í starfi á Landspítala.
Umsókn fylgi einnig kynningarbréf þar sem tilgreind eru persónuleg markmið með starfsnáminu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.10.2017

Nánari upplýsingar veitir
Auðna Ágústsdóttir - [email protected] - 543 1419

LSH Skrifstofa framkvæmdastjóra hjúkrunar
Eiríksgötu 5
101 Reykjavík



Smelltu hér til að sækja um starfið
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum