Hoppa yfir valmynd
20. september 2017

Læknir - Heilbrigðisstofnun Norðurlands - Sauðárkrókur - 201709/1496

Heilbrigðisstofnun Norðurlands HSN auglýsir stöðu læknis á Sauðárkróki
 
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkróki óskar eftir læknir til starfa.

Læknar sem starfa hjá HSN eru með aðalstarfstöð á heilsugæslustöð og sinna móttöku sjúklinga og heilsuvernd ásamt því að sinna vaktþjónustu í héraði skv. vaktaskema hverju sinni. Starfið felur einnig í sér störf á sjúkra- og hjúkrunarsviði. Störfin fela í sér þverfaglega samvinnu innan sem og út fyrir stöðina. 

Næsti yfirmaður er yfirlæknir á starfstöð.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennar lækningar og heilsuvernd
- Vaktþjónusta
- Læknisþjónusta á sjúkra- og hjúkrunarsviði
- Kennsla starfsfólks og nema
- Þróun og teymisvinna

Hæfnikröfur
- Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði. 
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni, óskað er meðmæla
- Faglegur metnaður í starfi og árangursmiðuð viðhorf
- Áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi
- Ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti eða staðfestingu á Íslensku lækninaleyfi. Kostur er að stofnuninni berist staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, meðmælum og viðtölum við umsækjendur. Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast í tvíriti til mannauðsstjóra HSN, Hafnarstræti 99, 600 Akureyri.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands tók til starfa þann 1. október 2014 við sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi annarra en Sjúkrahússins á Akureyri og nokkurra hjúkrunar- og dvalarheimila.

Þær heilbrigðisstofnanir sem mynduðu Heilbrigðisstofnun Norðurlands voru eftirfarandi stofnanir:

Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Heilsugæslan á Akureyri, Heilsugæslan á Dalvík, Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð, Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki og Heilbrigðisstofnunin Blönduósi.

Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands nær því frá Blönduós í vestri til Þórshafnar í austri. Á upptökusvæðinu búa um 35.000 manns og starfsmannafjöldi er rúmlega 510 talsins. Heildarvelta HSN er um ríflega 5,3 milljarðar króna. 

Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir heilsugæsluþjónustu, sjúkrahúsþjónustu auk öldrunarþjónustu í formi hjúkrunar- og dvalarrýma.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.10.2017

Nánari upplýsingar veitir
Þorsteinn M Þorsteinsson - [email protected] - 455 4000
Örn Ragnarsson - [email protected] - 455 4000

HSN Sauðárkrókur Heilsugæsla læknar
Sauðárhæðir
550 Sauðárkrókur


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum