Hoppa yfir valmynd
23. september 2017 Utanríkisráðuneytið

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis hafin vegna kosninga til Alþingis 28. október 2017

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis hafin vegna kosninga til Alþingis 28. október 2017 - myndHaraldur Jónasson / Hari
Kosning utan kjörfundar erlendis vegna kosninga til Alþingis 28. október 2017 er þegar hafin og fer fram skv. ákvæðum 59. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 með síðari tíma breytingum.

Kjörstaðir eru allar sendiskrifstofur Íslands (nema Fastanefnd hjá NATO í Brussel), aðalræðisskrifstofur í New York, Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk ásamt skrifstofum 240 kjörræðismanna víða um heim.

Sendiskrifstofur Íslands erlendis eru að jafnaði opnar kjósendum á venjulegum opnunartíma og í einstökum tilvikum utan hans. Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vef viðkomandi sendiráðs.
Kjósendur skulu hafa samband við kjörræðismenn og bóka tíma eftir samkomulagi til að kjósa.

Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis skemur en 8 ár (talið frá 1. desember árið áður en kosningar eru haldnar) eru sjálfkrafa með kosningarétt á Íslandi. Þeir þurfa að vera orðnir 18 ára á kjördag og hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi.

Þeir Íslendingar sem hafa búið erlendis lengur en frá 1. desember 2008 og ekki eru á kjörskrá þurfa að sækja sérstaklega um að þeir verði teknir á kjörskrá. Umsókn þarf að hafa borist Þjóðskrá í síðasta lagi 11. október 2017. Eyðublað vegna þessa má nálgast á vef Þjóðskrár.

Á vefnum kosning.is er birt upplýsingaefni bæði á íslensku og ensku.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum