Hoppa yfir valmynd
14. október 2017

Sjúkraliði - Landspítali, dagdeild skurðlækninga - Reykjavík - 201710/1624

 

 

Sjúkraliði á dagdeild skurðlækninga Hringbraut 
 
Við leitum eftir áhugasömum sjúkraliða til starfa á dagdeild 13D á Hringbraut sem einnig er tilbúinn til að taka helgarvaktir á deild 13EG, kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild. Starfið er laust 1. janúar 2018.

Á dagdeild skurðlækninga er tekið á móti sjúklingum sem fara í skurðaðgerð á kviðarholi, þvagfærum, hjarta- og brjóstholi og augum ásamt sjúklingum sem leitað hafa á bráðamóttöku í Fossvogi og þurfa frekari skoðun og mat. Einnig koma sjúklingar sem þurfa á styttri meðferð að halda. 
Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. 

Helstu verkefni og ábyrgð
» Hjúkrun dagdeildarsjúklinga og sjúklinga legudeildar 13EG
» Þátttaka í teymisvinnu

Hæfnikröfur
» Jákvætt viðhorf og samskiptahæfileikar
» Sjálfstæði í vinnubrögðum
» Íslenskt sjúkraliðaleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir "laus störf". Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.10.2017

Nánari upplýsingar veitir
Elín María Sigurðardóttir - [email protected] - 824 5914


LSH Dagdeild skurðlækninga H
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum