Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2017

Rekstrarstjóri - Landspítali, símaþjónusta - Reykjavík - 201711/1748

 

Rekstrarstjóri símaþjónustu
 
Rekstrarsvið Landspítala óskar eftir að ráða rekstrarstjóra símaþjónustu Landspítala. Starfið er laust frá 1. janúar 2018. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á leiðtogahæfileika, stefnumótandi hugsun og breytingastjórnun. Rekstrarstjórinn er yfirmaður öflugs 15 manna hóps starfsmanna. 
Símaþjónustan veitir nú almenningi og starfsmönnum símsvörunar- og upplýsingaþjónustu allan sólarhringinn alla daga ársins en ætlunin er að auka við þjónustuna með því að yfirtaka ýmsa upplýsingagjöf, verkefni og þjónustu sem nú er veitt á deildum spítalans.

Leitað er að kraftmiklum, þjónustumiðuðum og metnaðarfullum stjórnanda sem hefur löngun og hæfni til að byggja upp öfluga þjónustueiningu sem veitir framúrskarandi þjónustu. 

Helstu verkefni og ábyrgð
» Skipuleggur, stjórnar og ber ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri einingarinnar í samræmi við starfsáætlun
» Ber ábyrgð á að sett markmið náist um framúrskarandi þjónustu og hagkvæman rekstur 
» Stöðugar umbætur og framþróun í þjónustu einingarinnar
» Greining frávika í þjónustu og samskipti við viðskiptavini
» Stuðla að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi

Hæfnikröfur
» Reynsla af rekstri þjónustueiningar þar sem veitt er fjölþætt þjónusta í krefjandi umhverfi með nýjungar og þarfir viðskiptavina í fyrirrúmi
» Reynsla af umbótastarfi
» Þjónustulund, frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum
» Faglegur metnaður, frumkvæði og geta til að starfa í teymum
» Menntun sem nýtist í starfi
» Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.11.2017

Nánari upplýsingar veitir
Gylfi Skarphéðinsson - [email protected] - 825 3855
Viktor Ellertsson - [email protected] - 823 0323

LSH Flutninga- og símaþjónusta
Eiríksgötu 5
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum