Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2017

Skjalavörður/upplýsingafræðingur - Vísindasiðanefnd - Reykjavík - 201711/1768

Starf skjalavarðar/upplýsingafræðings

Vísindasiðanefnd auglýsir laust til umsóknar starf skjalavarðar/upplýsingafræðings á skrifstofu Vísindasiðanefndar. 

Helstu verkefni:

  • Samskipti við umsækendur og samstarfsaðila nefndarinnar
  • Vinna við skjalastjórn og skjalavörslu nefndarinnar.
  • Móttaka og skráning erinda/mála.
  • Frágangur skjala/mála í málaskrá.
  • Leitir í skjalasafni, upplýsingaöflun og –miðlun.

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Háskólamenntun/reynsla á sviði bókasafns- eða upplýsingafræði.
  • Þekking og reynsla af skjalastjórnunarkerfum stofnana. 
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg. 
  • Ábyrgð, nákvæmni og vandvirkni.
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
  • Mjög gott vald á íslensku er skilyrði.
  • Mjög góð kunnátta í ensku er nauðsynleg og vald á einu Norðurlandamáli er kostur.
  • Hæfni við miðlun upplýsinga.
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum og samstarfshæfni.

Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármála- og efnahagsráðherra. Upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Baldursson, framkvæmdastjóri, í síma 5517100.

Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu berast Vísindasiðanefnd, Borgartúni 21 Reykjavík eða í tölvupósti á póstfangið [email protected] eigi síðar en mánudaginn 4. desember 2017. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið liggur fyrir. 

Vísindasiðanefnd, 13. nóvember 2017

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum