Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2017

Geislafræðingur - Landspítali, geislaeðlisfræðideild - Reykjavík - 201711/1773

 

Geislafræðingur - Geislaeðlisfræðideild
 
Geislafræðingur óskast til starfa á geislaeðlisfræðideild 10K við Hringbraut. Starfshlutfall er 100% dagvinna. Starfið er laust frá 1. janúar 2018 eða eftir nánara samkomulagi. Í boði er einstaklingshæfð aðlögun í samstarfi við reynda starfsmenn.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Starfið felst í undirbúningi geislameðferðar og þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu m.a. til að tryggja nákvæmni meðferðarþátta
» Innleiðing nýrrar tækni og þróun og skilgreining verkferla er mikilvægur þáttur í starfinu og krefst starfið sjálfstæðra og agaðra vinnubragða

Hæfnikröfur
» Góð samskiptahæfni 
» Faglegur metnaður
» Íslenskt starfsleyfi geislafræðings

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.12.2017

Nánari upplýsingar veitir
Garðar Mýrdal - [email protected] - 543 6817

LSH Geislaeðlisfræði, tæknideild
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum