Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2017

Sjúkraliði - Landspítali, dagdeild skurðlækninga - Reykjavík - 201711/1774

 

Sjúkraliði á dagdeild skurðlækninga Hringbraut 
 
Við leitum eftir áhugasömum sjúkraliða til starfa á dagdeild 13D á Hringbraut. Starfshlutfall er 50-100% og er starfið laust 1. janúar 2018 eða eftir samkomulagi.

Á dagdeild skurðlækninga er tekið á móti sjúklingum sem fara í skurðaðgerð á kviðarholi, þvagfærum, hjarta- og brjóstholi og augum ásamt sjúklingum sem leitað hafa á bráðamóttöku í Fossvogi og þurfa frekari skoðun og mat. Einnig koma sjúklingar sem þurfa á styttri meðferð að halda, t.d. eftir lyfjagjöf, verkjameðferð, ástungur og aftöppun á vökva í kviðarholi. 
Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. 

Helstu verkefni og ábyrgð
» Hjúkrun dagdeildarsjúklinga 
» Þátttaka í teymisvinnu

Hæfnikröfur
» Jákvætt viðhorf og samskiptahæfileikar
» Sjálfstæði í vinnubrögðum
» Íslenskt sjúkraliðaleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.12.2017

Nánari upplýsingar veitir
Elín María Sigurðardóttir - [email protected] - 824 5914

LSH Dagdeild skurðlækninga H
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum