Hoppa yfir valmynd
22. nóvember 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins

Uppgjör ríkissjóðs fyrir janúar-september 2017 liggur nú fyrir. 

  • Tekjujöfnuður tímabilsins er 39,6 ma.kr. sem er 25,7 ma.kr umfram áætlun tímabilsins. Ef tekið er tillit til frávika vegna fjárheimildastöðu fyrra árs, arðgreiðslna umfram áætlanir og vaxtagjalda við uppgreiðslu á erlendu skuldabréfi þá er tekjujöfnuður um 1,9 ma.kr undir áætlun tímabilsins.
  • Tekjur tímabilsins án fjármunatekna námu 561,4 ma.kr. eða 7,8 ma.kr. umfram áætlun. Tekjur stofnana eru um 10,7 ma.kr. yfir áætlun sem skýrist af tæknilegum þáttum og af innbyrðis færslum sem ekki er lokið við að leiðrétta fyrir.
  • Gjöld tímabilsins án fjármagnsgjalda eru 508,9 ma.kr. eða um 8,6 ma.kr. yfir áætlun. Ef tekið er tillit til fjárheimildastöðu frá fyrra ári eru gjöldin um 11 ma.kr. undir áætlun.
  • Tekjur umfram gjöld eru 52,6 ma.kr. eða 18,8 ma.kr. yfir áætlun (sjá nánar í kafla um tekjugreiningu).
  • Fjármagnsjöfnuður tímabilsins er neikvæður um 12,9 ma.kr. sem er 6,9 ma.kr. yfir áætlun tímabilsins. Fjármagnstekjur nema 42,8 ma.kr. eða 13,5 ma.kr. yfir áætlun sem skýrist aðallega af meiri arðgreiðslum af eign ríkisins í Landsbankanum og Íslandsbanka en gert var ráð fyrir. Fjármagnsgjöld nema 55,8 ma.kr. og eru 6,6 ma.kr. yfir áætlun sem skýrist að mestu af nettó 10,9 ma.kr. kostnaði sem féll til vegna uppkaupa á erlendri skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs á vormánuðum. 
  • Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 51 ma.kr., afborganir lána námu 219 ma.kr.og lækkar handbært fé um 116,7 ma.kr.
  • Fjárheimildir frá fyrra ári nema samtals 19,6 ma.kr. og eru til bráðabirða inni í fjárheimildum. Endanlegur flutningur fjárheimilda milli ára bíður staðfestingar Alþingis í lokafjárlögum ársins 2016.
  • Útgjöld málefnasviða að frádregnum rekstrartekjum námu 521,2 ma.kr. og voru 4,5 ma.kr. hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir innan fjárheimilda ársins, en 15,1 ma.kr. lægri en áætlað var ef tekið er tillit til höfuðstóls fyrra árs. Megin frávik innan ársins eru á eftirfarandi málefnasviðum:

10. Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla innanríkismála eru um 2,1 ma.kr. umfram áætlun.

21. Háskólastig 2,6 ma.kr. innan fjárheimilda.

26. Lyf og lækningavörur 1,9 ma.kr. umfram áætlun.

27. Örorka og málefni fatlaðs fólks 2,2 ma.kr. umfram áætlun.

29. Fjölskyldumál 1,4 ma.kr innan fjárheimilda

33 Vextir, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar 7,4 ma.kr. umfram áætlun.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum