Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2017

Framhaldsskólakennarar, bílgreinar - Borgarholtsskóli - Reykjavík - 201711/1822

Bílgreinakennarar óskast við Borgarholtsskóla 

Eftirtaldar framtíðarstöður kennara í bíliðngreinum við Borgarholtsskóla eru lausar til umsóknar:

Bifreiðasmíði, 100%
Bifvélavirkjun, 100%

Ráðning og kjör: Umsækjendur hafi lokið prófi í viðkomandi grein ásamt því að hafa kennsluréttindi í framhaldsskóla. Laun eru í samræmi við kjarasamning KÍ og stofnanasamning Borgarholtsskóla. 

Umsækjendur greini í umsókn frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem telja má að skipti máli.

Jafnt konur og karlar eru hvött til að sækja um störfin.

Sakavottorð fylgi umsókn.

Á heimasíðu skólans, www.bhs.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans. 

Upplýsingar um starfið veitir Marín Björk Jónasdóttir, sviðstjóri, [email protected]; sími: 698 5795.

Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til Ársæls Guðmundssonar, skólameistara, [email protected], í síðasta lagi 11. desember 2017.

Borgarholtsskóli er fjölbreyttur, framsækinn og skapandi skóli sem leggur áherslu á að allir fái nám við sitt hæfi. Boðið er upp á margar 
námsleiðir; í bóknámi, listnámi, iðnnámi og starfsnámi. Einkunnarorð Borgarholtsskóla eru: agi, virðing, væntingar.

 

 

Skólameistari

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum