Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2017

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ - Seltjarnarnes - 201711/1823

 

Starf hjúkrunarfræðings við Heilsugæsluna Seltjarnarnesi og Vesturbæ
 
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa við Heilsugæsluna Seltjarnarnesi og Vesturbæ. Um er að ræða 80% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 2. janúar eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarmóttaka, heilsugæsluhjúkrun og ungbarnavernd. Starfssvið hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu er mjög fjölbreytt. Þeir sinna meðal annars heilsuvernd barna, einstaklingum með langvinnan heilsuvanda, öldruðum, símaráðgjöf og bráðaþjónustu.

Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun æskileg
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Faglegur metnaður og áhugi á að vinna með börnum
- Sjálfstæði í starfi 
- Reynsla af og áhugi á teymisvinnu

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Stéttarfélag er Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 11.12.2017

Nánari upplýsingar veitir
Emilía Petra Jóhannsdóttir - [email protected] - 513-2100

HH Seltjarnarnesi hjúkrun
Suðurströnd
170 Seltjarnarnes


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum