Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2017

Lektor í dönsku máli - Háskóli Íslands, Mála- og menningardeild - Reykjavík - 201711/1828

 

Lektor – Mála- og menningardeild - Háskóla Íslands – Reykjavík 

Umsóknarfrestur framlengdur til 15. janúar 2018

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í dönsku máli við Mála- og menningardeild á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Um er að ræða starf erlends lektors sem til var stofnað samkvæmt samningi Háskóla Íslands og danska Mennta- og vísindaráðuneytisins (Uddannelse og Forskningsministeriet), sjá nánar hér

Samkvæmt samningnum er það skilyrði að lektorinn hafi dönsku að móðurmáli. Leitað er að starfsmanni sem lokið hefur cand.mag., mag.art. eða ph.d. prófi með sérhæfingu í dönsku máli (að lágmarki kandídatsritgerð eða það sem sambærilegt má teljast). Rannsóknir, sérhæfing eða sérstök reynsla af kennslu í dönsku sem erlends máls á háskólastigi er kostur. Kunnátta í  íslensku máli er kostur, auk þess er krafist góðrar samstarfshæfni og lipurðar í mannlegum samskiptum. 

Um er að ræða tímabundið starf sem ráðið verður í til þriggja ára með möguleika á framlengingu í allt að tvö ár. 

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. 

Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2018.

Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2018 eða samkvæmt samkomulagi. 

Umsóknir skulu berast á rafrænu formi á netfangið  [email protected], merktar HI17100165. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og greinargerð um áform ef til ráðningar kemur.  Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Umsókn og umsóknargögn sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. 

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra. 

Nánari upplýsingar um starfið veita Óskar Einarsson, rekstrarstjóri Hugvísindasviðs, netfang: [email protected], Auður Hauksdóttir, prófessor, netfang: [email protected], Pernille Folkman, lektor, netfang: [email protected] eða Þórhildur Oddsdóttir, aðjunkt, netfang: [email protected]

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum