Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2017 Forsætisráðuneytið

Opinn fundur um stöðu mannréttinda á Íslandi 30. nóvember

Stýrihópur stjórnarráðsins um mannréttindi stendur fyrir opnum fundi í Veröld, Húsi Vigdísar Finnbogadóttur, fimmtudaginn 30. nóvember næstkomandi frá klukkan 14:00-16:00. Á fundinum verða niðurstöður UPR-ferlisins (Universal Periodic Review) kynntar auk almennrar umræðu um störf stýrihópsins, stöðu mannréttinda á Íslandi og næstu skref.

Mannréttindi varða alla stjórnsýsluna, sveitarfélög og borgarasamfélagið og er því öflug samvinna í málaflokknum nauðsynleg. Markmiðið með stýrihópi stjórnarráðsins um mannréttindi er að mynda fastan samráðsvettvang til að tryggja stöðugt verklag og fasta aðkomu stjórnarráðsins alls að málaflokknum. Verkefni stýrihópsins felast m.a. í eftirfylgni með tilmælum vegna UPR-úttektarinnar og úttekta annarra alþjóðlegra eftirlitsaðila, samskiptum við ríkislögmann vegna dómsmála fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, samhæfingu utanríkis- og innanríkisstefnu á sviði mannréttinda og umsjón og eftirfylgni með innleiðingu/fullgildingu alþjóðlegra mannréttindasamninga.

Dagskrá:

14:00  Fulltrúi dómsmálaráðuneytisins opnar fundinn.
14:10  Ragna Bjarnadóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, kynnir niðurstöður UPR-ferlisins og nýstofnaðan stýrihóp stjórnarráðsins um mannréttindi.
14:30  Margrét Steinarsdóttir frá Mannréttindaskrifstofu Íslands kynnir skuggaskýrslu.
14:50  Þuríður Harpa Sigurðardóttir frá ÖBÍ.
15:00  Inga Huld Ármann fulltrúi ungmenna frá ungmennaráði Umboðsmanns barna.
15:10  Pallborðsumræður (Þuríður Harpa Sigurðardóttir fulltrúi ÖBÍ, Margrét Steinarsdóttir fulltrúi Mannréttindaskrifstofu Íslands, Rúnar Helgi Haraldsson fulltrúi Fjölmenningarsetursins, Árni Múli Jónasson fulltrúi Þroskahjálpar, Inga Huld Ármann fulltrúi ungmenna, Kittý Anderson fulltrúi frá Samtökunum 78 og Ragna Bjarnadóttir fulltrúi UPR-hópsins)

Fundarstjórar: Rún Knútsdóttir, lögfræðingur í velferðarráðuneytinu, og Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur hjá forsætisráðuneytinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum