Hoppa yfir valmynd
5. desember 2017 Forsætisráðuneytið

Skipan ráðherranefnda – ráðherranefnd um jafnréttismál sett á laggirnar að nýju

Ríkisstjórn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs - mynd

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að starfrækja fjórar ráðherranefndir; ráðherranefnd um ríkisfjármál, ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins, ráðherranefnd um samræmingu mála er varða fleiri en eitt ráðuneyti og ráðherranefnd um jafnréttismál.

Ráðherranefnd um ríkisfjármál
Hlutverk ráðherranefndar um ríkisfjármál er að skipuleggja vinnubrögð á sviði ríkisfjármála á vettvangi ríkisstjórnarinnar og vinnubrögð gagnvart ráðuneytum og Alþingi, svo sem um stefnumótun í opinberum fjármálum, undirbúningi fjárlagagerðar, eftirlit með framkvæmd fjárlaga og langtímaáætlun í ríkisfjármálum. Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eiga fast sæti í nefndinni.

Ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins
Hlutverk ráðherranefndar um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins er að samræma stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum og hafa eftirlit með framkvæmd efnahagsstefnunnar á einstökum sviðum. Meðal þeirra verkefna sem nefndin fjallar um er framtíðarskipulag peningamála og samræming í fjármálum hins opinbera til skemmri og lengri tíma. Nefndin er auk þess stefnumótandi og í forystu varðandi samskipti við aðila vinnumarkaðarins, uppbyggingu fjármálakerfisins og stöðu Íslands á alþjóðavettvangi með tilliti til efnahagsmála. Þá er henni jafnframt ætlað að vera vettvangur samráðs og samræmingar við endurskoðun fjármálakerfisins í samræmi við þá áherslu í sáttmála ríkisstjórnar að breið sátt náist um endurskipulagningu fjármálakerfisins á Íslandi. Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra eiga fast sæti í nefndinni.

Ráðherranefnd um samræmingu mála er varða fleiri en eitt ráðuneyti
Hlutverk ráðherranefndar um samræmingu mála er að samhæfa stefnu og aðgerðir í málum þar sem málefnasvið og ábyrgð ráðherra skarast og tryggja vandaðan undirbúning mála og upplýsingaflæði á milli ráðherra. Nefndinni er auk þess ætlað að fylgja eftir innleiðingu verkefna í stjórnarsáttmála með markvissum hætti. Forsætisráðherra á fast sæti í nefndinni en aðrir ráðherrar munu sitja fundina í samræmi efni mála sem til umfjöllunar eru hverju sinni.

Ráðherranefnd um jafnréttismál
Hlutverk ráðherranefndar um jafnréttismál verður að samhæfa störf ráðherra og ríkisstjórna á sviði jafnréttismála, s.s. vegna lengingar fæðingarorlofs og hækkunar orlofsgreiðslna í fæðingarorlofi, baráttu gegn kynbundnum launamun og að sambærileg störf séu metin með sambærilegum hætti og að Ísland verði í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks. Nefndinni er jafnframt ætlað að fjalla um aðgerðaáætlun um úrbætur í meðferð kynferðisbrota og lagaumhverfi kynferðisbrota, með það að markmiði að styrkja stöðu kærenda kynferðisbrota, og um undirbúning Istanbúl-samningsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi.

Forsætisráðherra, félags- og jafnréttismálaráðherra, dómsmálaráðherra, heilbrigðisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra eiga fast sæti í nefndinni.

Aðrir ráðherrar sitja fundi ráðherranefnda eftir þörfum, samkvæmt ákvörðun forsætisráðherra sem stýrir fundum nefndanna í samræmi við reglur um starfshætti ráðherranefnda nr. 166/2013.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum