Hoppa yfir valmynd
6. desember 2017 Utanríkisráðuneytið

Mikilvægt að standa vörð um stöðugleika

Fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins lauk nú síðdegis í Brussel. Samskiptin við Rússland, baráttan gegn hryðjuverkum og staða mála í Norður Kóreu voru meðal helstu umræðuefna á fundinum. Þá var fjallað um samvinnu Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins og stuðning við ríki á suðurjaðri bandalagsins og stækkunarstefnu þess, auk þess sem fundað var með utanríkisráðherra Georgíu um samstarfs- og umbótaáætlanir.

„Bandalagið heldur áfram að treysta varnir í Evrópu en leggur jafnframt áherslu á að halda samskiptaleiðum opnum og minnka spennu. Þá er einnig lögð áhersla á umbætur í öryggismálum í grannríkjum Atlantshafsbandalagsins til gera þeim betur kleift að tryggja eigið öryggi og þar með öryggi ríkja Atlantshafsbandalagsins,” segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sem sótti fundinn.

Ennfremur var fundað með utanríkisráðherrum Finnlands og Svíþjóðar, ásamt utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. „Það er sérstakt ánægjuefni hve samstarfið við okkar norrænu vinaþjóðir utan Atlantshafsbandalagsins er orðið náið, enda deila þau sömu gildum og leggja sitt leggja sitt að mörkum til sameiginlegs öryggis, segir Guðlaugur Þór sem jafnframt gerði mikilvægi kvenna til að stuðla að friði og öryggi að umtalsefni á fundinum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum