Hoppa yfir valmynd
6. desember 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Tuttugu og tveir sóttu um að stýra nýrri ráðuneytisstofnun

Velferðarráðuneytið í Skógarhlíð - myndVelferðarráðuneytið

Alls sóttu 22 um embætti stjórnanda nýrrar ráðuneytisstofnunar sem ætlað er að styrkja undirstöður heildstæðrar þjónustu ríkis og sveitarfélaga á sviði félagsþjónustu og barnaverndar. Frestur til að sækja um embættið rann út 4. desember síðastliðinn.

Skipuð hefur verið þriggja manna nefnd sem falið er að meta hæfni umsækjenda. Gert er ráð fyrir að ákvörðun um skipun í embættið liggi fyrir í byrjun nýs árs.

Umsækjendur eru eftirtaldir:

Áki Ármann Jónsson framkvæmdastjóri
Árni Múli Jónasson framkvæmdastjóri
Benjamín Gíslason verkefnastjóri
Brynhildur Barðadóttir ráðgjafi
Drífa Kristjánsdóttir aðstoðarskólastjóri
Finnur Þ. Gunnþórsson fyrirtækjaráðgjafi
Guðmundur Rúnar Árnason ráðgjafi
Guðrún Björk Reykdal sérfræðingur
Guðrún Jónsdóttir sálfræðingur
Gunnar Kristinn Þórðarson stjórnsýslufræðingur
Gunnhildur Gunnarsdóttir lögfræðingur
Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen deildarstjóri
Kristján Sturluson sérfræðingur
María Rúnarsdóttir félagsráðgjafi
Ólafur Ólafsson útibússtjóri
Rósa Guðrún Bergþórsdóttir sérfræðingur
Sandra Hlíf Ocares ráðgjafi
Sigríður Jónsdóttir sérfræðingur
Steinunn Bergmann sérfræðingur
Tinna Björg Sigurðardóttir verkefnastjóri
Vigdís Erlendsdóttir deildarstjóri
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm staðarstjóri


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum