Hoppa yfir valmynd
13. desember 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkissjóður gefur út nýtt skuldabréf í evrum

Ríkissjóður Íslands hefur í dag gefið út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, sem jafngildir um 61,5 milljörðum króna.

Skuldabréfin bera 0,5% fasta vexti og eru gefin út til 5 ára á ávöxtunarkröfunni 0,56%. Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 3,9 milljörðum evra eða ríflega áttfaldri fjárhæð útgáfunnar. Fjárfestahópurinn samanstendur af seðlabönkum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Evrópu. Umsjón var í höndum Citi, Barclays, Deutsche Bank og Nomura.

Samhliða nýju útgáfunni gerði ríkissjóður tilboð í eldri skuldabréfaútgáfu frá árinu 2014 sem nam 750 milljónum evra. Eigendur bréfa að nafnvirði 397,6 milljónir evra eða um 49 ma.kr. tóku tilboði ríkissjóðs og fengu þeir sem vildu forgang í nýju útgáfunni. Heildarskuldsetning ríkissjóðs eykst um 12,5 ma.kr. við aðgerðina.

„Þessi útgáfa markar tímamót en ríkissjóður hefur aldrei tekið lán á hagstæðari kjörum,“ segir Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra. „Viðbrögð fjárfesta voru vel umfram væntingar en eftirspurn var ríflega átta sinnum meiri en framboðið. Þátttakan í endurkaupunum og eftirspurn eftir nýju útgáfunni er merki um traust fjárfesta og er viðkurkenning á þeim góða árangri sem náðst hefur ríkisfjármálum og við stjórn efnahagsmála. Hækkun lánshæfismats Fitch í síðustu viku hefur án efa einnig haft jákvæð áhrif. Aðgerðin er liður í að framfylgja langtímastefnu í lánamálum ríkisins þar sem markmiðin eru meðal annars þau að tryggja aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum til lengri tíma og að stórum og fjölbreyttum hópi fjárfesta og setur mikilvægt viðmið á hagstæðum kjörum fyrir aðra sem þurfa aðgang að erlendum lánsfjármörkuðum," segir Bjarni Benediktsson.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum