Hoppa yfir valmynd
14. desember 2017 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Hafþór Eide aðstoðar mennta- og menningarmálaráðherra

Hafþór Eide Hafþórsson - mynd
Hafþór Eide Hafþórsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Hann hefur þegar hafið störf.

Hafþór er 28 ára viðskiptafræðingur, með B.Sc próf frá Háskólanum í Reykjavík auk þess sem hann hefur lokið prófi til verðbréfamiðlunar frá sama skóla. Hann hefur starfað í verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka undanfarið ár en starfaði áður sem verkefnastjóri hjá Iceland Travel, á rekstrarsviði Air Atlanta, bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar og í mannauðs- og upplýsingateymi Alcoa Fjarðaáls. Þá stýrði hann sögusafninu Fransmenn á Íslandi á Fáskrúðsfirði í tvö sumur.

Hafþór hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn. Hann var formaður Sambands ungra framsóknarmanna árið 2013 og kosningastjóri flokksins í Reykjavík í nýafstöðnum Alþingiskosningum.

Hafþór er í sambúð með Ármanni Lloyd Brynjarssyni, starfsmanni Icelandair hótela.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum