Hoppa yfir valmynd
22. desember 2017 Forsætisráðuneytið

Skipun nefndar um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálasamtaka

Alþingishúsið við Austurvöll. - myndEydís Eyjólfsdóttir

Skipun nefndar um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Markmiðið með nefndinni er meðal annars að leita leiða til að tryggja fjármögnun, sjálfstæði og lýðræðisleg vinnubrögð og gagnsæi í starfsemi allra starfandi stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi, óháð stærð þeirra.

Töluverðum hluta af framlögum ríkisins til stjórnmálaflokka er ráðstafað í kostnaðarliði sem eru óháðir fylgi eða fjölda þingmanna. Þar má nefna skrifstofurekstur, félagsheimili, félagatal, lágmarks starfsmannahald og lögbundna skyldu til bókhalds og endurskoðunar á ársreikningum sem skila ber ár hvert til Ríkisendurskoðunar. Með fjölgun flokka á Alþingi hefur hlutfall fjármuna sem varið er í rekstur á grunnstoðum flokkanna hækkað svo um munar en á móti hafa framlög lækkað. Með endurskoðun laganna gefst tækifæri til að jafna aðstöðu flokkanna að þessu leyti, óháð stærð þeirra, sem felur sér í lagi í sér aukinn stuðning við smærri flokka.

Gert er ráð fyrir að í nefndinni eigi sæti fulltrúar allra stjórnmálasamtaka, sem sæti eiga á Alþingi, auk fulltrúa forsætisráðuneytisins sem stýrir nefndinni, fulltrúa dómsmálaráðuneytisins, en lög um fjármál stjórnarmálasamtaka heyra samkvæmt forsetaúrskurði undir það ráðuneyti, og fulltrúi Ríkisendurskoðunar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum