Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2018 Matvælaráðuneytið

Hildur Sverrisdóttir ráðin aðstoðarmaður ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Hildur Sverrisdóttir  - mynd

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur ráðið Hildi Sverrisdóttur sem aðstoðarmann sinn. Hún hefur störf undir lok þessa mánaðar. Þórdís Kolbrún mun þar með hafa tvo aðstoðarmenn en fyrir er Ólafur Teitur Guðnason.

Hildur er fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkjurkjördæmi suður. Á síðasta kjörtímabili var hún þingmaður fyrir flokkinn og þar áður borgarfulltrúi.

Hildur er fædd árið 1978. Hún er með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og lögmannsréttindi. Hún hefur meðal annars starfað sem lögfræðingur hjá fjölmiðlafyrirtækinu 365 og sem framkvæmdastjóri V-dags gegn kynferðisbrotum. Hildur skrifaði um árabil bakþanka í Fréttablaðið og ritstýrði jafnframt bókinni Fantasíur.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum