Hoppa yfir valmynd
12. janúar 2018

Geðlæknir - Sjúkrahúsið á Akureyri - Akureyri - 201801/109

 

Geðlæknir
 
Laus er til umsóknar 100% staða sérfræðings í geðlækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri og veitist staðan frá 1. júní 2018 eða eftir samkomulagi.
Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús, sem veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu. Áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. Geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri er eina geðdeildin utan höfuðborgarsvæðisins. Þar eru sex stöður lækna. Deildin þjónar aðallega íbúum Norður- og Austurlands 18 ára og eldri. Deildin skiptist í legudeild og dag- og göngudeild með fjölbreyttum verkefnum. Góð samvinna er við aðrar sjúkrahúsdeildir, heilsugæslustöðvar, félagsþjónustu sveitarfélaga, geðsvið Landspítalans og stofnanir SÁÁ fyrir fíknisjúklinga.

Næsti yfirmaður er Helgi Garðar Garðarsson forstöðulæknir geðlækninga

Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér þjónustu við sjúklinga á legudeild geðdeildar sjúkrahússins, göngudeild og bráðamóttöku, ennfremur samvinnu við aðrar deildir sjúkrahússins og stofnanir á Norður- og Austurlandi. Starfinu fylgir vaktskylda, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoðar- og deildarlækna auk tækifæra til rannsóknarvinnu.

Hæfnikröfur
Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í geðlækningum. Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu auk hæfileika á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum. 

Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is 

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt upplýsingum um fræðilegar rannsóknir, rit- og kennslustörf og staðfest afrit af fylgigögnum.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. 

Gildi Sjúkrahússins á Akureyrir eru: Öryggi - €“ Samvinna - Framsækni. 

Sjúkrahúsið hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.03.2018

Nánari upplýsingar veitir
Helgi Garðar Garðarsson - [email protected] - 4630100
Árni Jóhannesson - [email protected] - 4630100

FSA Geðlækningar
Eyrarlandsvegi
600 Akureyri


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum