Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra fundar með formanni grænlensku landsstjórnarinnar

Kim Kielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, átti fund í dag með Kim Kielsen, formanni grænlensku landsstjórnarinnar, en Kielsen fer einnig með umhverfismál í landsstjórninni.

Á fundi sínum ræddu ráðherrarnir meðal annars úrgangsmál sem er stórt viðfangsefni í Grænlandi, loftslagsmál, ferðamál og náttúruvernd, málefni Norðurslóða og samskipti landanna tveggja.

Síðar í dag mun Kielsen heimsækja Sorpu, Endurvinnsluna og Úrvinnslusjóð til að kynna sér stöðu úrgangsmála hér á landi.  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum