Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2018 Forsætisráðuneytið

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsækir umboðsmann barna

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti í gær embætti umboðsmanns barna og kynnti sér starfsemina og húsakynni. Umboðsmaður barna, Salvör Nordal, gerði grein fyrir stefnumótun og áherslum embættisins fyrir tímabilið 2018 til 2022.

Fram kom að embættið telur brýnt að efla stefnumótun á mörgum sviðum sem tengjast börnum. Grunnur að því sé greining á stöðu barna í íslensku samfélagi.

Rætt var um hagsmuni barna og réttindi og þá hugarfarsbreytingu sem fylgir lögfestingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, einkum vegna áherslu hans á mikilvægi þess að hlustað sé á sjónarmið barna í öllum þeim málum er þau varða. Miklu skipti að við allar ákvarðanir stjórnvalda séu hagsmunir barna hafðir í huga og að lagafrumvörp séu sérstaklega rýnd með tilliti til réttinda þeirra og hagsmuna.

Þá voru ræddar leiðir til að auka áhrif barna í samfélaginu og rétt barna til að láta skoðanir sínar í ljós um mál eins og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum