Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2018 Dómsmálaráðuneytið

Drög að breytingu á reglugerð um útlendinga til umsagnar

Drög að breytingu á reglugerð um útlendinga  nr. 540/2017 eru nú til umsagnar hjá dómsmálaráðuneytinu. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir um drögin til og með 12. febrúar næstkomandi.

Drögin fela í sér reglugerðarákvæði er varða nánari skilgreiningu á því til hvaða sjónarmiða stjórnvöldum er heimilt að líta til við mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra ástæðna eða sérstakra tengsla við landið, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Nánar tiltekið varðar þetta heimildir stjórnvalda til mats á því hvenær taka beri umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi umfram það sem leiðir af sérstökum reglum, svo sem reglum Dyflinnarreglugerðarinnar.

Samkvæmt drögunum er stjórnvöldum heimilt við mat á sérstökum ástæðum er varða umsækjanda um vernd að líta til eftirfarandi þátta:

  • Er hætta á að umsækjandi muni verða fyrir alvarlegri mismunun í viðtökuríki?
  • Glímir umsækjandi við mikil og alvarleg veikindi ?
  • Stendur honum ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki?

Samkvæmt drögunum geta efnahagslegar ástæður ekki talist til sérstakra ástæðna og einnig er óheimilt að líta til athafna umsækjanda eða afleiðinga þeirra athafna sem hafa þann tilgang að setja þrýsting á stjórnvöld við ákvarðanatöku.

Í drögunum er einnig kveðið á um sérviðmið er varða börn og ungmenni:

  • Taka ber ríkt tillit til afstöðu fylgdarlauss barns og þeirrar sérstaklega viðkvæmu stöðu.
  • Heimilt er að horfa til ungs aldurs viðkomandi sem náð hefur 18 ára aldri en var fylgdarlaust barn við komu til landsins.
  • Þá er einnig ítrekað það mannréttindasjónarmið að almennt skuli vera viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Samkvæmt reglugerðardrögunum er ennfremur heimilt er að taka tillit til sérstakra tengsla við landið hafi umsækjandi áður haft útgefið dvalarleyfi hér á landi í eitt ár eða lengur.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum