Hoppa yfir valmynd
8. febrúar 2018 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Mennta- og menningarmálaráðherra bar saman kreppur í Seúl

Aðdragandi og áhrif íslensku fjármálakreppunnar árið 2008 voru til umræðu í fyrirlestri hjá Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra í Seðlabanka Suður-Kóreu í gær. Líkt og Ísland gekk Suður-Kórea í gegnum fjármálakreppu, en landið tókst á við miklar efnahagsþrengingar í kjölfar asísku fjármálakreppunnar sem hófst árið 1997.

,,Það er margt líkt með því sem gerist í aðdraganda fjámálakreppanna hjá báðum ríkjum, eins og mikið erlent fjármagnsinnflæði, kröftugur hagvöxtur, mikil einkaneysla ásamt því að lánveitingar í bankakerfinu voru til tengdra aðila í miklum mæli. Þrátt fyrir þetta ójafnvægi var afgangur á fjárlögum og skuldastaða ríkjanna góð. Á móti kom að gjaldeyrisforðarnir voru báðir smáir í sniðum í samanburði við þá áskorun sem við var að etja“, sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra þegar hún bar saman stöðu landanna. Eins og Ísland náði Suður-Kórea að rétta úr kútnum eftir asísku fjármálakreppuna.
,,Við sjáum að bæði löndin hafa náð að yfirstíga erfiðleikana í kjölfar efnahagsþrenginganna. Hagvöxtur tók hressilega við sér, skuldastaða ríkjanna batnaði talsvert, atvinnuleysi minnkaði ört og talsverður afgangur hefur verið af utanríkisviðskiptum‘‘ bætti Lilja við.
Hún átti jafnframt fund með seðlabankastjóra Suður-Kóreu, Lee Ju-yeol og framkvæmdastjóra alþjóðasviðs bankans, Seung Heon Lee. Fram kom á fundunum að helstu áskoranir suður-kóreska hagkerfisins eru minnkandi samkeppnishæfni landsins og öldrun þjóðarinnar. Stjórnvöld í Suður-Kóreu eru að bregðast við þeim vanda meðal annars með því að styrkja umgjörð hátækniiðnaðarins og efla endurmenntun þar sem störf hafa glatast í kjölfar tæknibreytinga.
,,Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa skýra sýn á hvernig hagkerfi eigi að byggja upp til framtíðar. Þeir leggja áherslu á samþættingu mennta- og efnahagsstefnu. Hátækniiðnaður hefur blómstrað í Suður-Kóreu og fjölmörg erlend stórfyrirtæki hafa orðið til í landinu. Ég tel að hægt sé að draga lærdóm af því hvernig hlutirnir eru gerðir hér,‘‘ sagði Lilja.
  • Mennta- og menningarmálaráðherra bar saman kreppur í Seúl - mynd úr myndasafni númer 1
  • Mennta- og menningarmálaráðherra bar saman kreppur í Seúl - mynd úr myndasafni númer 2

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum