Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2018 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun styrkja á sviði menningar-, íþrótta- og æskulýðsmála 2018

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur úthlutað styrkjum af safnliðum fyrir árið 2018 til verkefna er stuðla að faglegri uppbyggingu á sviði menningarmála. Í auglýsingu ráðuneytisins 29. september 2017 var tekið fram að úthlutað yrði styrkjum á sviði lista og menningararfs annars vegar og til mannvirkja á sviði íþrótta- og æskulýðsmála hinsvegar. 

Á sviði lista og menningararfs eru veittir rekstrar- og verkefnastyrkir til félaga, samtaka og einstaklinga sem starfa á sviði lista og að verndun menningarminja og hafa ekki aðgang að uppbyggingarsjóðum landshluta eða öðrum sjóðum  lista og menningararfs.

Á sviði íþrótta- og æskulýðsmála eru veittir stofnstyrkir til að styðja við uppbyggingu, endurnýjun og viðhald íþróttamannvirkja og mannvirkja fyrir æskulýðsstarfsemi í samstarfi við sveitarfélög og fleiri aðila.

Mat á umsóknum byggði einkum á eftirtöldum sjónarmiðum: 

a)   gildi og mikilvægi verkefnis fyrir stefnu viðkomandi málaflokks,

b)   gildi og mikilvægi verkefnisins fyrir kynningu og markaðssetningu viðkomandi málaflokks,

c)   að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum sem verkefnið miðar að,

d)   starfsferli og faglegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda,

e)   fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.

Alls bárust 97  umsóknir þar sem sótt var um styrki alls að fjárhæð 429.437.312 kr.  Alls eru veittir 37 styrkir að þessu sinni, samtals að fjárhæð 56.300.000 kr.

Eftirfarandi  umsækjendur og verkefni hlutu styrki fyrir árið 2018:

Styrkir til lista og menningararfs

Verkefnastyrkir                                                                  

 

Umsækjandi

Verkefni

Úthlutað

ASSITEJ Ísland

UNGI - alþjóðleg sviðslistahátíð fyrir ungt fólk

800.000

Barnabókasetur Íslands

Siljan, myndbandasamkeppni fyrir ungt fólk

500.000

Cycle Music and Art Festival

Listahátíðin Cycle, Heimur heima

1.000.000

Danshópurinn Sporið

Miðlun íslenskra þjóðdansa sem menningarhefðar

300.000

Félag norrænna forvarða -Ísland

Alþjóðleg ráðstefna á Íslandi

500.000

Félag um listasafn Samúels

Endurbætur á húsi Samúels

500.000

Fífilbrekka ehf

Ljósmyndaverkefni um hús Samvinnuhreyfingarinnar

1.000.000

Harpa ohf

Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna

500.000

Íslandsdeild ICOMOS

Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi

500.000

Íslenskir eldsmiðir

Fræðsla um eldsmíði - námskeið og sýningar

500.000

Íslensk tónverkamiðstöð

Skylduskil til Landsbókasafns Íslands

2.000.000

KrakkaRÚV

Gagnvirkt vefsjónvarp fyrir ungmenni með áherslu á vandað málfar og góða íslensku

1.500.000

Leikminjasafn Íslands

Frágangur og skráning leikmuna

3.700.000

Mýrin - félag um barnabókmenntahátíð

Úti í Mýri - alþjóðleg barnabókmenntahátíð

1.000.000

Nína Margrét Grímsdóttir

Reykjavík Classics, tónleikaröð í Hörpu

1.200.000

Norræna húsið í Reykjavík

Menningarveisla í Vatnsmýrinni í tilefni af 50 ára afmæli hússins 2018

800.000

SÍUNG

SÖGUR - verðlaunahátíð barnanna

500.000

Sviðslistasamband Íslands

Markaðs og kynningarmál

500.000

Tónskáldafélag Íslands

Myrkir músíkdagar

2.000.000

Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða

Faglegir fundir, fræðsla og alþjóðlegt samstarf

1.200.000

Valdimar Össurarson

Orðasjóður Kollsvíkinga

500.000

 

Rekstrarstyrkir

Bandalag sjálfstæðra leikhúsa

3.500.000

Bókmenntahátíð í Reykjavík

3.000.000

Félag íslenskra safna og safnmanna

1.500.000

Reykjavík Dance Festival

3.500.000

 

Stofnstyrkir til íþrótta- og æskulýðsmála

Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar

Úrbætur á öryggissvæði keppnisbrautar

800.000

Golfklúbbur Vestmannaeyja

Framkvæmdir á mótssvæði fyrir Íslandsmót í höggleik 2018

2.000.000

Landssamband hestamannafélaga

Uppbygging keppnisvalla í Víðidal fyrir Landsmót hestamanna 2018

6.000.000

Skáksamband Íslands

Viðgerð á þaki vegna leka í húsakynnum sambandsins

1.000.000

Skátafélagið Garðbúar

Viðgerðir og endurbætur á húsakynnum skátaheimilisins

350.000

Skátafélagið Heiðabúar

Viðgerðir og endurbætur á húsakynnum skátaheimilisins

350.000

Skátafélagið Mosverjar

Viðgerðir og endurbætur á húsakynnum skátaheimilisins

350.000

Skátafélagið Strókur

Viðgerðir og endurbætur á húsakynnum skátaheimilisins

350.000

Skógarmenn KFUM - Vatnaskógi

Vatnaskógur - ljúka við nýtt hús og bætt aðgengi

1.000.000

Sveitarfélagið Skagafjörður

Uppbygging mannvirkja fyrir Landsmót UMFÍ og Landsmót UMFÍ 50+ 2018

6.000.000

Sveitarfélagið Ölfus

Unglingalandsmót UMFÍ 2018

5.000.000

Vegahúsið ungmennahús

Viðhald Vegahússins ungmennahúss

600.000

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum