Hoppa yfir valmynd
16. febrúar 2018 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ban Ki-moon segir að læra megi af Íslendingum í jafnréttismálum

Sjálfbærnistofnun Ban Ki-moon var sett á fót árið 2017 með það markmið að styðja við innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna þar sem sérstök áhersla er lögð á málefni kvenna og ungs fólks.

Ban Ki-moon, sem var aðalritari Sameinuðu þjóðanna árin 2007-2016, átti fund með Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, og Líney Rut Halldórsdóttur framkvæmdastjóra ÍSÍ, í Pyeongchang í Suður-Kóreu nýverið. Á fundinum var m.a. rætt um valdeflingu ungs fólks og jafnrétti kynjanna. Þá komu íþróttir einnig við sögu en Ban Ki-moon var nýverið kjörinn formaður siðanefndar Alþjóða Ólympíunefndarinnar ásamt því að hafa komið á friðarsáttmála Ólympíuhreyfingarinnar (Olympic truce) og Sameinuðu þjóðanna, en sáttmálinn undirstrikar mikilvægi íþrótta í því að vinna að friði í heiminum. Ban Ki-moon lýsti yfir mikilli hrifningu á Íslandi og talaði sérstaklega um hið leiðandi hlutverk sem Ísland gegnir þegar kemur að jafnréttismálum.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sagði: „Á fundi okkar kom fram að það eru ýmis álitlegir samstarfsfletir á milli Íslands og stofnunar Ban Ki-moon. Við Íslendingar höfum náð góðum árangri í jafnréttis- og æskulýðsmálum og eins og rætt var á fundinum. Það er ljóst að Ísland hefur ýmislegt til málanna að leggja í alþjóðasamstarfi og lýsti ég yfir vilja til að miðla reynslu okkar og þekkingu áfram. “

Ban Ki-moon stofnunin vinnur innan ramma heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og hefur að markmiði að vinna að friði, mannréttindum, útrýmingu fátæktar og valdeflingar kvenna og ungs fólks. Í heimsmarkmiðunum hefur hlutverk ungs fólks mikið vægi en sá hópur er einn níu hópa sem Sameinuðu þjóðirnar vinna sérstaklega með til þess að tryggja breiða þátttöku úr öllum kimum samfélagsins. 

  • Ban Ki-moon segir að læra megi af Íslendingum í jafnréttismálum - mynd úr myndasafni númer 1

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum