Hoppa yfir valmynd
22. febrúar 2018

Rannsóknarlektor - Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum - Reykjavík - 201802/420

 

Rannsóknarlektor á orðfræðisviði við stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Starf rannsóknarlektors við orðfræðisvið Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf. Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi á fræðasviði stofnunarinnar. Ætlast er til að þeir geti með námsferli sínum, starfsreynslu og ritverkum sýnt fram á trausta fræðilega þekkingu á íslensku máli að fornu og nýju og kunnáttu á sviði orðfræði í víðum skilningi, einkum með tilliti til íslensks orðaforða og orðanotkunar. Góð þekking á íslenskri málsögu og reynsla af sögulegum málrannsóknum er kostur. Æskilegt er að umsækjendur kunni góð skil á orðhlutafræði og fræðilegum forsendum orðabókargerðar og hafi innsýn í skipulag og úrvinnslu stórra gagna- og textasafna. Gerð er krafa um góða samskiptahæfni og gott vald á talaðri og ritaðri íslensku er skilyrði.

Í starfinu er fólgin 40% rannsóknarskylda en auk þess er rannsóknarlektornum ætlað að taka þátt í þeim verkefnum sem unnið er að á orðfræðisviði. Einkum er lögð áhersla á að styrkja það starf sem fram fer við uppbyggingu, úrvinnslu og greiningu gagnasafna stofnunarinnar um íslenskt mál og orðaforða. Jafnframt þarf hann að taka þátt í miðlun upplýsinga um gögnin og þekkingar á grundvelli þeirra til fræðimanna, háskólanema og almennings.

Ráðið verður í starfið frá og með 1. september 2018 til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Um hæfi umsækjenda og meðferð umsókna er farið eftir ákvæðum laga um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum nr. 40/2006 og reglugerðar um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum nr. 861/2008.

Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni ítarlega skýrslu um vísindastörf sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og vottorð um námsferil sinn og störf. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur standa að ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Einnig er nauðsynlegt að í umsókn komi fram hvaða verkefnum umsækjendur hafa unnið að, hverju þeir vinna að sem stendur og hver séu áform þeirra um rannsóknarverkefni ef af ráðningu yrði. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja nafn og netfang tveggja einstaklinga sem eru til þess bærir að veita umsagnir um verk þeirra og hæfni.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs.

Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2018. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal senda á netfang Sigurborgar Stefánsdóttur fjármálastjóra: [email protected] eða til Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík ásamt fylgigögnum í þríriti. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. 

Við ráðningar í störf hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.  

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Svavarsdóttir, stofustjóri orðfræðisviðs, [email protected] eða í síma 525 4437.

Frekari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðunni: http://www.arnastofnun.is/. 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum