Verkefnastjóri á fjármálasviði - Biskupsstofa - Reykjavík - 201802/421
Biskupsstofa óskar eftir að ráða verkefnastjóra á fjármálasvið.
Helstu verkefni:
• Umsjón með launavinnslu og útborgun launa
• Kjarasamningar, réttindi og skyldur
• Umsjón með viðverukerfinu Vinnustund
• Skráningar, gerð ferðareikninga og utanumhald gagna
• Samskipti við starfsmenn, stjórnendur, lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Góð þekking á forritum Office og bókhaldsforritum, sem og reynsla af vefsviðskiptum
• Haldbær reynsla af launavinnslu skilyrði
• Reynsla af launakerfi Orra og á viðverukerfinu Vinnustund
• Reynsla af afstemmingum og leiðréttingum
• Skipulagshæfni og nákvæmni í starfi
• Frumkvæði og áhugi á að þróa enn frekar framkvæmd verkefna og verkferla
• Góð samskiptafærni
Launakjör taka mið af kjarasamningum ríkisins og viðeigandi stéttarfélags. Við ráðningu í starfið er tekið mið af jafnréttisáætlun Þjóðkirkjunnar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rannveig J. Haraldsdóttir, [email protected]
Þjóðkirkjan vill þróa starfshætti og vinnubrögð á vettvangi safnaða sinna og stofnana sem geri henni kleift að sækja fram með fagnaðarerindið og smíða brýr milli fólks og menningarheima í fjölþættu samfélagi nútímans. Biskupsstofa vill örva rannsóknir á kirkju, trú og lífsskoðunum í samtímanum, stöðu og hlutverki kirkjunnar, og stuðla að þróun kirkjustarfs og þjónustu. Starfsmannastefnu Þjóðkirkjunnar má lesa á kirkjan.is.
Umsóknarfrestur til og með 12. mars 2018