Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2018

Kennari í bifreiðasmíði - Borgarholtsskóli - Reykjavík - 201802/428


 

Kennari í bifreiðasmíði óskast við Borgarholtsskóla 

Menntaðan bifreiðasmið vantar í 100 % stöðu við Borgarholtsskóla frá og með haustönn 2018. 

Laun eru í samræmi við kjarasamning KÍ og stofnanasamning Borgarholtsskóla. 

Umsækjendur greini í umsókn frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem telja má að skipti máli.
Jafnt konur og karlar eru hvött til að sækja um störfin.
Sakavottorð fylgi umsókn.

Á heimasíðu skólans, www.bhs.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans. 

Upplýsingar um starfið veitir Marín Björk Jónasdóttir, sviðstjóri, [email protected]; sími: 698 5795.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til Ársæls Guðmundssonar, skólameistara, [email protected] fyrir 12. mars 2018.

Borgarholtsskóli er fjölbreyttur, framsækinn og skapandi skóli sem leggur áherslu á að allir fái nám við sitt hæfi. Boðið er upp á margar námsleiðir; í bóknámi, listnámi, iðnnámi og starfsnámi.
Einkunnarorð Borgarholtsskóla eru: agi, virðing, væntingar.

Skólameistari

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum