Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2018

Svæfingahjúkrunarfræðingur - Landspítali, svæfingadeild - Reykjavík - 201802/388

 

Svæfingahjúkrunarfræðingur - Svæfingadeild Fossvogi
 
Við sækjumst eftir faglegum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi með sérhæfingu í svæfingahjúkrun. Í boði er einstaklingsaðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins, á góðum vinnustað sem er í fararbroddi í faglegu starfi og þróun. 

Á svæfingadeild Landspítala í Fossvogi starfa um 30 svæfingahjúkrunarfræðingar við fjölbreytt og krefjandi verkefni í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Svæfingadeild heyrir undir aðgerðasvið sem annast rekstur skurðstofa, gjörgæsludeilda, Blóðbanka, dauðhreinsunardeildar auk speglunardeildar. 

Helstu verkefni og ábyrgð
» Starfar við svæfingar og deyfingar sjúklinga við skurðaðgerðir
» Sinnir símainnritun sjúklinga fyrir dagdeildaraðgerðir ásamt öðrum sérhæfðum verkefnum á ýmsum deildum spítalans
» Ákveður, skráir og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við þarfir skjólstæðinga og ber ábyrgð á meðferð samkvæmt starfslýsingu og vinnureglum deildar

Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Sérnám í svæfingahjúkrun
» Góð samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð
» Hæfni og geta til að starfa í teymi
» Faglegur metnaður

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Unnið er í dagvinnu ásamt hús- og bakvöktum eftir að þjálfun lýkur. 
Starfið er laust frá 1. apríl 2018 eða eftir nánara samkomulagi.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. 
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.03.2018

Nánari upplýsingar veitir
María Garðarsdóttir - [email protected] - 825 3810
Þórgunnur Hjaltadóttir - [email protected] - 825 5136

LSH Svæfing F
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum