Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2018 Forsætisráðuneytið

Frumvarp um endurnot opinberra upplýsinga lagt fram á Alþingi

Frumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, til laga um endurnot opinberra upplýsinga hefur verið lagt fram á Alþingi. Meginmarkmið frumvarpsins er að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2013/37/ESB og mæla fyrir um reglur um endurnot opinberra upplýsinga í sérstökum lagabálki. Ákvæði um efnið hafa hingað til verið að finna í upplýsingalögum en þeim hefur lítið verið beitt í framkvæmd.

Skýrar reglur um endurnot opinberra upplýsinga þjóna þeim markmiðum ríkisstjórnarinnar að leggja áherslu á opna stjórnsýslu og gagnsæi. Framtíðarsýn stjórnvalda er að almenningur geti nálgast á einum stað opin gögn með ópersónubundnum upplýsingum og að opin gögn verði gjaldfrjáls og endurnýtanleg eins og kostur er á. Í þessu skyni hefur verið opnuð miðlæg gátt fyrir opin gögn á vefnum opingogn.is. Frumvarpinu er ætlað að styðja við þessa þróun með því að auðvelda einkaaðilum að nálgast reglur sem gilda um endurnot slíkra gagna.

Samkvæmt frumvarpinu verður opinberum aðilum skylt að verða við beiðni um heimild til endurnota upplýsinga sem almenningur hefur rétt til aðgangs að á grundvelli upplýsingalaga eða annarra laga, með tilteknum skilyrðum. Þannig mega endurnotin t.d. ekki brjóta í bága við lög. Opinberum aðilum er heimilt að setja endurnotunum frekari skilyrði, sem þurfa þó að þjóna málefnalegum tilgangi, gæta skal samræmis og jafnræðis við útfærslu þeirra og þau mega ekki takmarka möguleika á endurnotum eða samkeppni óhóflega.

Helstu breytingar með tilskipun 2013/37/ESB eru þær að gildissvið endurnota er víkkað út þannig að reglurnar ná einnig til safna, bókasafna og skjalasafna. Þá þrengir tilskipunin heimildir opinberra aðila til gjaldtöku fyrir endurnot opinberra upplýsinga og endurspeglar frumvarpið þessa breytingu. Að meginstefnu verður óheimilt að innheimta hærra gjald en sem nemur beinum kostnaði af fjölföldun, afhendingu og dreifingu upplýsinganna. Þá þarf öll gjaldtaka að fara fram samkvæmt gjaldskrá sem forsætisráðherra staðfestir. Loks gerir frumvarpið ráð fyrir að öllum ágreiningi um heimildir til endurnota upplýsinga frá opinberum aðilum megi skjóta til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum