Hoppa yfir valmynd
8. mars 2018 Forsætisráðuneytið

Halla Gunnarsdóttir leiðir starf stýrihóps um úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi

Halla Gunnarsdóttir - mynd
Samið hefur verið við Höllu Gunnarsdóttur um að leiða starf stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi. Meginhlutverk hópsins er að beita sér fyrir framsæknum og samhæfðum aðgerðum stjórnvalda gegn kynferðislegu ofbeldi, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og að Ísland sé í fremstu röð í baráttunni gegn hvers kyns kynbundnu ofbeldi.

Halla hefur víðtæka reynslu af mannréttindamálum og í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni. Hún starfaði áður sem skrifstofustjóri hjá breska Kvennalistanum (The Women’s Equality Party) þar sem hún leiddi stefnumótun samtakanna. Þá starfaði Halla á alþjóðlegri lögmannsstofu í Lundúnum, McAllister-Olivarius, sem sérhæfir sig í málum er lúta að kynbundnu áreitni á vinnustöðum, innan menntastofnana og á internetinu.

Á árunum 2009-2013 starfaði Halla sem aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra og heilbrigðisráðherra. Þar leiddi hún m.a. samráð um meðferð nauðgunarmála, hafði frumkvæði að vitundarvakningu um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum í samstarfi við velferðarráðuneytið, innanríkisráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Halla er fyrrum blaðamaður og hefur verið virk í baráttunni gegn kyndbundnu ofbeldi, þar á meðal á vettvangi Femínistafélags Íslands.

Halla hóf störf 1. mars og mun vinna að verkefninu á grundvelli verksamnings við forsætisráðuneytið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum