Hoppa yfir valmynd
16. mars 2018 Heilbrigðisráðuneytið

Aðgangur að dvalarrýmum og dagdvöl verði óháður aldri

Alþingi - myndHeilbrigðisráðuneytið

Gildandi aldursmörk sem einskorða þjónustu dagdvalar og dvalarrýma við aldraða verða numin úr gildi samkvæmt nýju frumvarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Aðgangur að þessari þjónustu verður bundinn við faglegt mat á þörf viðkomandi fyrir þessi úrræði. Ráðherra kynnti frumvarpið á fundi ríkisstjórnar í dag.

Nokkuð er um að óskað sé eftir undanþágum frá aldursmörkum laganna vegna fólks yngra en 67 ára sem þarfnast þjónustu í dagdvöl eða dvalarrými en fyrir því er ekki stoð í lögum. Verði frumvarpið samþykkt opnast fyrir aðgang yngra fólks að þessari þjónustu að undangengnu faglegu mati á heilsufari þess og verður jafnframt forgangsraðað eftir því.

Samkvæmt gildandi lögum um málefni aldraðra sjá færni- og heilsumatsnefndir um mat á þörf fólks fyrir búsetu á hjúkrunar- og dvalarheimilum. Aðgangur fólks að hjúkrunarrýmum er ekki bundinn við aldur, heldur er einungis horft til niðurstöðu mats nefndanna á þörf viðkomandi fyrir þessa þjónustu. Með áformuðum lagabreytingum verður hið sama látið gilda um dvalarrýmin.

Gert er ráð fyrir að mat á þörf fólks fyrir dagdvöl verði í höndum fagteyma á heilbrigðisstofnunum og að ráðherra geti kveðið nánar um fyrirkomulag hvað það varðar með reglugerð.

Í frumvarpi heilbrigðisráðherra er lagt til að fjallað verði um þjónustu dvalarrýma og dagdvalar í lögum um heilbrigðisþjónustu og einnig að kveðið verði á um greiðsluþátttöku vegna þessara úrræða í lögum um sjúkratryggingar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum