Hoppa yfir valmynd
19. mars 2018 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Til umsagnar: Drög að lagafrumvarpi á sviði ferðamála

Ferðamenn á Brennisteinsöldu - myndHugi Ólafsson

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið óskar eftir umsögnum á samráðsgátt stjórnvalda um drög að lagafrumvarpi á sviði ferðamála, frumvarpi til breytinga á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.

Frumvarpið felur í sér breytingar á ákvæði 17. gr. um tækifærisleyfi vegna viðburða sem haldnir eru utan veitingastaða og skemmtistaða en einnig breytingar sem varða heimagistingu, eftirlit og viðurlög við brotum á lagaákvæðum sem um hana gilda og ennfremur breytingar sem varða niðurfellingu rekstrarleyfa.

Verði frumvarpið að lögum er líklegt að fleiri viðburðir geti talist falla undir ákvæði 17. gr. um tækifærisleyfi og þar af leiðandi geti fleiri verið krafðir um greiðslu hlutdeildar í löggæslukostnaði. Með breytingum á öðrum ákvæðum í frumvarpinu er stefnt að því að sníða nokkra vankanta af framkvæmd leyfisveitinga og skráningu heimagistingar eftir að lagabreyting skv. lögum nr. 67/2016 tóku gildi þann 1. janúar 2017. Þeir varða aðallega styrkingu lagastoðar fyrir viðurlögum við heimagistingu,stjórnvaldssektir við því að skila ekki nýtingaryfirliti í heimagistingu og staðfestingu á heimild til niðurfellingar rekstrarleyfis hafi umsagnir við leyfisumsókn verið rangar í upphafi eða skilyrði og kröfur til rekstrarins hafi breyst.

Drögin hafa verið birt á samráðsgátt stjórnvalda við almenning og er unnt að senda umsagnir um drögin til 22. mars nk.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum