Hoppa yfir valmynd
20. mars 2018 Forsætisráðuneytið

Frumvörp um bann við allri mismunun

Alþingi - myndVelferðarráðuneytið

Frumvörp Ásmundar Einars Daðasonar félags- og jafnréttismálaráðherra um jafna meðferð á vinnumarkaði og um jafna meðferð fólks óháð kynþætti og þjóðernisuppruna hafa verið lögð fram á Alþingi.

Ásmundur segir fagnaðarefni að frumvörpin séu nú komin fyrir þingið, efni þeirra sé mikilvægt þar sem það varði virðingu fyrir mannréttindum og vernd gegn brotum á þeim: „Stjórnarsáttmálinn er skýr hvað þetta varðar og ég treysti því að þessi frumvörp fái gott brautargengi á Alþingi.“  Hann bendir einnig á hinar Norðurlandaþjóðirnar og önnur Evrópuríki hafi þegar innleitt tilskipun Evrópusambandsins um jafna meðferð óháð kynþætti eða þjóðernisuppruna eða endurspeglað efni hennar í landsrétti sínum. Þá sé uppi skýr krafa af hálfu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna og sérfræðinganefnd félagsmálasáttmála Evrópu um að hér verði sett lög um bann við mismunun á grundvelli kynþáttar og þjóðernisuppruna og ítrekað hafi verið fjallað um brot íslenska ríkisins gegn félagsmálasáttmála Evrópu af þessum sökum.

 „Það er ótækt að Ísland sé eftirbátur vestrænna ríkja þegar kemur að vernd einstaklinga gegn mismunun og nú verðum við að koma þessum  málum í höfn“ segir Ámundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.

Með frumvarpi um jafna meðferð á vinnumarkaði eru lögð til skýr ákvæði sem banna alla mismunun fólks á vinnumarkaði, hvort heldur beina eða óbeina, á grundvelli kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, skertrar starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar. Þetta þykir mikilvægt til að stuðla að virkri þátttöku sem flestra á vinnumarkaði en atvinnuþátttaka er talin ein þýðingarmesta leiðin til að koma í veg fyrir félagslega einangrun og fátækt. Við gerð frumvarpsins var höfð hliðsjón af tilskipun Evrópuráðsins 2000/78/EB um almennar reglur um jafna meðferð á vinnumarkaði og í atvinnulífinu.

Síðarnefnda frumvarpið kveður á um meginregluna um  jafna meðferð einstaklinga óháð kynþætti og þjóðernisuppruna á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar.  Við gerð þess var höfð hliðsjón af efni tilskipunar 2000/43/EB um jafna meðferð óháð kynþætti eða þjóðernisuppruna.

Með skýru banni við mismunun er horft til þess að stuðla að virkri þátttöku sem flestra í íslensku samfélagi óháð kynþætti og þjóðernisuppruna og koma í veg fyrir félagslega einangrun einstaklinga af sömu ástæðum. Markmiðið er einnig að sporna við því að skoðanir á mismunandi verðleikum kynþátta festi hér rætur.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum