Hoppa yfir valmynd
22. mars 2018

Íslenskukennari - Menntaskólinn á Akureyri - Akureyri - 201803/646

Frá Menntaskólanum á Akureyri

Umsóknarfrestur framlengdur til 23. apríl nk.

Menntaskólinn á Akureyri auglýsir eftir kennara í fullt starf í íslensku, um er að ræða ráðningu til eins árs.

Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í viðkomandi grein og kennsluréttindi. Ráðið verður í stöðuna frá 15. júlí 2018.

Leitað er að einstaklingum sem eru færir í samskiptum, eiga gott með að vinna með nemendum og eru tilbúnir til að taka þátt í þróun kennslu og náms.

Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Kennarasambands Íslands og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr.92/2008 og þarf nýtt sakavottorð að fylgja umsókn. 

MA er framsækinn menntaskóli með langa sögu og býr nemendur undir nám í háskóla og líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi í sífelldri þróun.  Skólinn  starfar undir kjörorðunum  virðing – víðsýni – árangur. Í MA er öflugt þróunarstarf og  góður starfsandi. 

Skriflegar umsóknir, ásamt prófskírteinum og upplýsingum um nám og fyrri störf skulu berast Menntaskólanum á Akureyri á rafrænu formi á [email protected]  í síðasta lagi 23. apríl 2018. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Ef þú vilt  takast á við krefjandi kennarastarf í metnaðarfullum skóla er tækifærið hér.  Frekari upplýsingar veita Jón Már Héðinsson skólameistari og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir aðstoðarskólameistari, sími: 4551555,  netfang [email protected] .

Menntaskólanum á Akureyri,
Jón Már Héðinsson
Skólameistari MA                             

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum