Hoppa yfir valmynd
22. mars 2018

Sjúkraliði - Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - Reykjanesbær - 201803/648

Sjúkraliði á slysa- og bráðamóttöku hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Sjúkraliði

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa á slysa- og bráðamóttöku í Reykjanesbæ. Um er að ræða vaktavinnu á virkum dögum og er starfshlutfallið 80%.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstakling sem getur unnið sjálfstætt. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sjúkraliðar sinna skjólstæðingum og öðrum störfum undir stjórn og í samvinnu við hjúkrunarfræðinga. Þeir starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn.

Hæfnikröfur

Íslenskt sjúkraliðaleyfi.
Faglegur metnaður og vandvirkni.
Jákvætt og hlýtt viðmót.
Góð samskiptahæfni.
Sjálfstæði í vinnubrögðum.
Samvinnufýsi og vilji til að vinna þau verkefni sem þarf.
Að minnsta kosti 7 ára starfsreynsla.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir geta gilt í sex mánuði.

Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 16.04.2018

Nánari upplýsingar veitir

Íris Kristjánsdóttir í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 422-0500
Guðný Birna í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 422-0500


Sækja um starf



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum