Hoppa yfir valmynd
28. mars 2018 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.

Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 318/2018 um úthlutunina, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. maí – 31. desember 2018:

Vöruliður:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

0202

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst

01.05. - 31.12.18

99.333

0

0

0203

Svínakjöt, fryst

01.05. - 31.12.18

166.667

0

0

0207

Kjöt af alifuglum, fryst

01.05. - 31.12.18

218.667

0

0

0208.9003

Rjúpur, frystar

01.05. - 31.12.18

66.667

0

0

ex 0210

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**)

01.05. - 31.12.18

33.333

0

0

ex 0406

Ostur og ystingur (**)

01.05. - 31.12.18

36.667

0

0

0406

Ostur og ystingur

01.05. - 31.12.18

50.000

0

0

1601

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum

01.05. - 31.12.18

66.667

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.05. - 31.12.18

80.000

0

0

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 448/2012.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 mánudaginn 9. apríl 2018.

 

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,

28. mars 2018.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum